„Ég var að horfa upp í hlíðina þegar hún fór af stað. Það var tilkomumikið getum við sagt.“

Hanna Christel Sigurkarlsdóttir stóð inni á heimili sínu við Fossgötu og sá þegar skriða fór af stað. Hún rauk út úr húsinu með son sinn og keyrði af stað. Skriðan lenti á Austurvegi og Hafnargötu skömmu síðar.


Benedikt Bóas Hinriksson. (2020, 17. desember). Horfði á hlíðina koma niður. Fréttablaðið. Sótt af: https://www.frettabladid.is/frettir/horfdi-a-hlidina-koma-nidur/.