Hreinsunarstörf á svæðinu

Leyfi fékkst til að hefja hreinsun í jöðrum svæðisins en enn mátti ekki fara undir skriðufarveginn sjálfan. Tvær gröfur og einn vörubíll voru að störfum í jaðri skriðunnar en vel var fylgst með hreyfingum í fjallinu. Tækin voru kölluð út af svæðinu þegar lítil spýja kom niður Breiðablikslækinn en fengu að snúa aftur stuttu síðar.

Gunnar Gunnarsson. (2020, 18. desember). „Gríðarlegt magn sem kom í nótt“. Austurfrétt. Sótt af: https://www.austurfrett.is/frettir/gridharlegt-magn-sem-kom-i-nott.