Vatn flæðir enn í Botnahlíð 17

Skriðan lá enn að húsi þeirra hjóna en unnið var að því að færa jarðveginn frá húsinu svo hægt væri að komast að því hvað olli lekanum. „Það heldur bara áfram að leka inn í það. Ég er búinn að koma tíu sinnum og dæla úr því,“ sagði Davíð en svo virtist sem vatn læki inn á milli gólfplatna. „Ég er enginn byggingarverkfræðingur, ég er bara maður í stígvélum og geng um og reyni að hjálpa.“ Vínylplötur Davíðs voru meðal þess sem eyðilagðist. „Ég sé til dæmis Bubbasafnið mitt hérna. Það er allt áritað frá vini mínum. Ég á eftir að gráta það lengi.“

Viðar Guðjónsson. (2020, 17. desember). Hefur dælt tíu sinnum úr húsinu sínu. Mbl.is. Sótt af: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/12/17/hefur_daelt_tiu_sinnum_ur_husinu_sinu/.